Leiðin byrjar frá Ráðhústorgi og þaðan er labbað framhjá bókasafninu og upp alla Brekkugötu. Þar má sjá styttuna af Helga magra og Þórunni hyrnu. Þaðan er haldið suður eftir Helgamagrastræti alveg að sundlauginni. Þaðan er beygt upp og labbað með Þórunnarstræti að Lystigarðinum.
Bókaskilti. Á Akureyri liggur skemmtileg barnabóka lestraganga frá Amtsbókasafninu að Nonnahúsi sem byggir á járnbókum með brotum úr völdum íslenskum barnabókum.
Það tekur 30-40 mínútur að ganga frá upphafspunkti gönguleiðarinnar sem er nokkuð brött á köflum. Frábært útsýni yfir bæinn og skemmtileg leið fyrir alla fjölskylduna.
Náttúruna er ekki langt að sækja frá miðbænum. Aðeins í nokkra mínútu fjarðlægð frá Ráðhústorginu er hægt að sjá fallega náttúru, garða og stórbrotið útsýni.
Glerárdalur er fólkvangur og liggur upp af Akureyri. Um dalinn rennur áin Glerá. Dalurinn hentar vel til útivistar og liggur um hann gönguleið inn að Lamba.
Gönguleið sem liggur frá brúnni við Hlíðarfjallsveg upp eftir svokölluðum Fallorkustíg upp að uppistöðulóninu fyrir Glerárstíflu og aftur niður eftir stígnum sem liggur inn að Lamba.
Fjölbreytt gönguleið sem liggur meðfram Glerá, við eða niður í gljúfrið, framhjá virkjuninni og lóninu auk þess sem gengið er í gegnum skógarreitinn sem liggur meðfram gljúfrinu fyrir neðan Giljahverfið.
Hér kynnum við 5 gönguleiðir um þessa fögru eyju. Tímarnir sem gefnir eru upp á leiðunum eru flestir rúmir því það er margt sem fangar athyglinga á þessari fallegu eyju og því viðbúið að gönguhraðinn sé ekki mikill.
Á æfingarsvæði Þórs má finna 400m upphitaða hlaupabraut sem hentar vel til hlaups jafnt og göngu. Brautin er opin bæði um sumar og vetur þannig að það er alltaf tilvalið að taka nokkra hringi.
Þægileg gönguleið milli Akureyrar og Hrafnagils. Leiðin er um 9 km, önnur leiðin.
Hún er malbikuð og nánast enginn hæðarmunur og hentar því fyrir flesta.
Hrísey er rétt um 11,5 ferkílómetrar að flatarmáli. Hún er um 7 km að lengd og 2,5 km þar sem hún er breiðust. Hæst er hún rétt norðan við vitann, en þar er hún 110 m yfir sjó. Þar er kallaður Bratti og eru skriður þar fram í sjó.
Kjarnaskógur er eitt vinsælasta útivistarsvæði Akureyringa. Trjágróður í Kjarnaskógi er afar fjölbreyttur og trjásýnistígur liggur um hjarta skógarins meðfram Brunná.
Gengið um svæðið fyrir ofan og vestan við Akureyri. Leiðin liggur meðfram Lónsánni, eftir sjálfri Lögmannshlíðinni þar sem fram fer mikil skógrækt suður að Lögmannshlíðarkirkju.
Víða um eldri hluta bæjarins, allt frá Oddeyrarbryggju að miðbænum og áfram suður í innbæinn, hafa verið reist skilti, svokallaðar "söguvörður", sem segja sögu húsa og staðhátta í máli og myndum. Nánari upplýsingar um skiltin og staðsetningu þeirra má...
Á Akureyri eru fjölmörg útilistaverk sem gaman er að skoða á gönguferðum. Hægt er að skipta göngunni eftir hverfum og gera úr þessu fjölbreyttar göngurferðir.
Í VINNSLU
Gengin stikuð yfir heiðina. Á leiðinn má meðal annars sjá merkilega steinbrú sem hlaðin var 1871. Hægt er að velja hvort byrjað eða endað er í Eyjafirðinum eða Fnjóskadal.