Til baka

Vísindakakó

Vísindakakó

Ókeypis aðgangur og öll velkomin!
 
Vísindakakó er viðburður fyrir forvitna krakka sem vilja eiga beint samtal við vísindafólk, heyra hvað það er að rannsaka og hvernig það er að starfa í vísindum.
Á vísindakakó gefst gestum tækifæri á að hitta aðila úr vísindasamfélaginu í óformlegu spjalli um þær vísindarannsóknir sem viðkomandi leggur stund á og ekki síst fá að spyrja ótal spurninga um allt það sem við kemur því að starfa við rannsóknir og vísindi.
 
Á þessu Vísindakakói mun Helena Sigurðardóttir, kennsluráðgjafi hjá Háskólanum á Akureyri, ræða við gesti um sitt rannsóknastarf við HA.
Gert er ráð fyrir að viðburðurinn sé um ein klukkustund og að sjálfsögðu verður boðið upp á kakó og kleinur á meðan birgðir endast.
 
Aðgangur er ókeypis og öll velkomin
 
Heildardagskrá fyrir Vísindakakó má sjá á heimasíðu Vísindavöku: https://www.visindavaka.is/vidburdir/visindakako/
Hvenær
laugardagur, mars 8
Klukkan
13:00-14:00
Hvar
Amtsbókasafnið, Brekkugata, Akureyri