Þórunn Kristín, vatnazúmba kennari, mun bjóða upp á opinn tíma í tilefni Akureyrarvöku.
Í vatnazúmba/Aqua Zumba er verið að gera mjög svipaðar hreyfingar eins og í hefðbundinni vatnsleikfimi en hreyfingarnar eru settar saman á annan hátt, í rútínu, svo þátttakendur eru að dansa.
Allir geta tekið þátt og skemmt sér.
Nánari upplýsingar:
Dagsetning: 26. ágúst
Tímasetning: kl. 12.00 - 13.00
Staðsetning: Sundlaug Akureyrar
Aðgangseyrir: Samkvæmt verðskrá Sundlaugar Akureyrar
Viðburðurinn er styrktur af Akureyrarvöku 2023.