Til baka

Töfrabækurnar - Sagan af Gýpu

Töfrabækurnar - Sagan af Gýpu

Töfrabækurnar er brúðuleikhús fyrir yngstu kynslóðina

Umskiptingar bjóða ykkur velkomin í undraveröld Töfrabókanna.

Þegar bókin er opnuð birtist heillandi heimur og sagan lifnar við.

Töfrabækurnar er brúðuleikhús fyrir yngstu kynslóðina.

Sýnt er í leikhúsinu á Möðruvöllum í Hörgárdal á hverjum sunnudegi kl 15:00

 

Fyrsta sagan er Sagan af Gýpu.

Gýpa er með eindæmum matgráðug og mesta furða að hún hafi ekki verið búin að éta heimilisfólk út á gaddinn. Þegar matinn þrýtur étur hún askinn sinn, karl og kerlingu í kotinu og kúna Kreppilhyrnu. Síðan heldur hún af stað til að leita að meiri mat. Hver skyldi vera svo ólánsamur að verða á vegi hennar?

 

Kaffi, kruðerí og föndur í boði eftir sýningu.

 

Leikstjóri: Jenný Lára Arnórsdóttir

Leikarar: Jónína Björt Gunnarsdóttir og Margrét Sverrisdóttir

Framleiðsla: Fanney Valsdóttir

Brúðuhönnun: Margrét Sverrisdóttir

Höfundar tónlistar: Vilhjálmur B. Bragason og Sesselía Ólafsdóttir

Hvenær
sunnudagur, október 1
Klukkan
14:00-14:30
Verð
2.500 kr.