Þorláksmessutónleikaröð Bubba Morthens er ein allra langlífasta tónleikahefð í aðdraganda jóla. Bubbi bregður ekki út af vananum þetta árið og heldur af stað með kassagítarinn. Hann verður á kunnuglegum slóðum líkt og undanfarin ár. Tónleikaröðin hefst i einu vinsælasta tónleikastað landsins, Bæjarbíói í Hafnarfirði föstudagskvöldið 11. desember. Síðan verður haldið á Akranes og Akureyri og endað á sjálfa þorláksmessu í Eldborgarsal Hörpu.