Til baka

Þeistareykir. Fjallahjólaferð á rafhjóli

Þeistareykir. Fjallahjólaferð á rafhjóli

 
Þeistareykir. Rafhjólaferð

Brottför kl. 8 á einkabílum frá FFA, Strandgötu 23.
Fararstjórn: Jón M. Ragnarsson og Stefán Sigurðsson

Ekið að Þeistareykjavirkjun. Lagt af stað þaðan og hjólað suður með Bæjarfjalli, síðan til austurs sunnan við Kvíhólafjöll og Þórunnarfjöll austur að Gjástykki og norður með því, allt á gömlum slóðum. Kíkt verður á Stóra-Víti sem er gríðarstór sprengigígur, um 300 m í þvermál. Þaðan liggur svo leiðin áfram niður Bóndhólsskarð að Þeystareykjavirkjun. Þeir sem eiga flutningsfestingu fyrir hjól nota hana, aðrir geta fengið hjólin flutt á hjólakerru.

Vegalengd: 35 - 40 km. Hækkun. Óveruleg.

Verð: 6.200 / 7.700 kr. Innifalið: Fararstjórn og flutningur á hjólum á hjólakerru fyrir þá sem þurfa.
Greitt er fyrir þessa ferð við brottför.

Hvenær
sunnudagur, júlí 20
Klukkan
08:00-15:00
Hvar
Strandgata, Akureyri
Verð
6.200 / 7.700 kr.