Vegna framkvæmda í kirkjutröppunum verða stórtónleikar Akureyrarvöku nú haldnir á okkar kæra Ráðhústorgi líkt og var á árum áður. Kynnar kvöldsins, Jónína Björt Gunnarsdóttir og Ívar Helgason, leiða gesti í gegnum ævintýraheim listarinnar. Gestir á sviði eru Bríet, hljómsveitin Á móti Sól, Kári Egilsson og hljómsveit, og Akureyringurinn Hrefna Logadóttir. Auk þeirra fá Jónína Björt og Ívar Helga til sín á sviðið hæfileikaríkt heimafólk sem lætur ljós sitt skína.
Landsbankinn er aðalstyrktaraðili tónleikana.
Tónleikarnir eru unnir í samstarfi við HS kerfi.
Viðburðurinn er styrktur af Akureyrarvöku 2023.