Til baka

Spila og púslmarkaður

Spila og púslmarkaður

Laugardaginn 9. nóvember fer fram spila- og púslmarkaður á Amtsbókasafninu.
 
Nú er tækifærið til að skipta, selja og kaupa notuð borðspil og púsl.
Þau sem vilja kaupa semja við hvern seljanda fyrir sig.
Þau sem vilja selja halda sjálf utan um sína sölu og standa vaktina.
 
Seljendur bóka borð með því að senda póst á hronnb@amtsbok.is, takmarkaður fjöldi borða er á staðnum.
 
Á staðnum verður einnig ókeypis skiptiborð þar sem fólk má gefa og taka að vild.
 
Við hvetjum ykkur til að mæta með umhverfisvænum hætti á viðburðinn. Frítt er í strætó og allir strætisvagnar stoppa í miðbænum í 300 metra fjarlægð frá safninu.
Hvenær
laugardagur, nóvember 9
Klukkan
12:00-15:00
Hvar
Amtsbókasafnið, Brekkugata, Akureyri