Námskeiðið er boðið af tilefni 150 ára ártíðar Sigurðar málara Guðmundssonar, eins nánasta vinar, sambýlings og elskaðs samstarfsmanns Matthíasar í listum og menningu. Saumuð verða mynstur sem Sigurður Guðmundsson hannaði fyrir skautbúning og kyrtilbúning, en nota má í ýmislegt annað eins og flíkur, töskur, púða, ramma inn. Nemendur geta valið milli tveggja mynstra: annars vegar Sóleyjarmunstrið og hins vegar Býsanska munstrið. Kristín Vala Breiðfjörð formaður Heimilisiðnaðarfélags Íslands mun kenna mismunandi útsaumsspor, svo sem flatsaum, fræhnúta, löng og stutt spor og leggsaum. Námskeiðið er fyrir lengra komin og byrjendur. Það fer fram á íslensku og tekið er tillit til þess að fólk sem hér býr kemur frá öllum heimshornum.
Innifalið er útsaumsefni, garn, nál og mynstur.
Líka te, kaffi og smá snarl.
Hugguleg samvera á haustsíðdegi.
Verð kr 19.900.
Endurgreiðsla möguleg hjá stéttafélögum.
Takmarkað pláss - hámarksfjöldi þátttakenda 10 manns.
Skráning á flora.akureyri@gmail.com.
Fyrst námskeiðið af þremur í haust í samvinnu við Heimilisiðnaðarfélag Íslands. Annað sóleyjar-útsaumsnámskeið er fyrirhugað fimmtudag 26. september og útsaumsnámskeið í anda William Morris / riddarateppið verður svo fimmtudag 24. október.