Sjómannadeginum er fagnað víða á landinu og er hefð fyrir því að fagna honum víða um Eyjafjörðin, má þar m.a. nefna Grímsey, Hrísey, Ólafsfjörð og Akureyri.
Á Akureyri er m.a. settur krans við minnismerki sjómanna, guðþjónustur helgaðar sjómönnum, siglt um Eyjafjörðinn. Víða er boðið upp á siglingu eða aðra skemmtun fyrir alla fjölskylduna.
Sjómannadagurinn árið 2023 er sunnudagurinn 4 júní.
Föstudagur 2.júní
Iðnaðarsafnið
kl. 15.00 Opið hús og sjómannadagsþema:
Iðnaðarsafnið 25 ára
Líkan af Húna II afhjúpað
Veitingar í tilefni dagsins
Sýning á skipa- og bátamódelum ásamt ýmsum öðrum hlutum tengdum sjómennsku.
Laugardagur 3. júní
Sandgerðisbót "Hátíð hafsins"
kl. 10.00 - 13.00
Trillukarlar bjóða heim
Sjómenn heiðraðir
Grill fyrir gesti og gangandi og ljúfir sjómannatónar
Fiskihöfn austan við Hagkaup
kl. 14.00 - 16.00
Opið í Húna II í tilefni 60 ára afmælis bátsins
Léttar veitingar
Sunnudagur 4. júní - Sjómannadagurinn
Akureyri
kl. 08.00 Bæjarbúar draga fána að hún
11.00 Sjómannadagsmessa í Glerárkirkju. Blómsveigur lagður að minnismerki um drukknaða og horfna sjómenn
Súpa í safnaðarheimilinu í boði sjómanna eftir athöfn
kl. 11.00 - 14.00 Aðstaða Siglingaklúbbsins Nökkva við Höpfner opin til sýnis
kl. 13.15 Húni II siglir frá Fiskihöfn (austan við Hagkaup) í hópsiglingu smábáta, selgskúta og sjóbretta.
Allir bátaeigendur velkomnir að taka þátt í siglingunni.
kl. 14.30 Sigling með Húna II – í boði sjómannafélags Eyjafjarðar - Allir velkomnir
kl. 15.30 Sigling með Húna II – í boði sjómannafélags Eyjafjarðar - Allir velkomnir
(Aukasigling ef þarf)
Grímsey
Fjölskyldudagskrá um morguninn við höfnina
kl. 14.00 Sjómannadagskaffisala í félagsheimilinu Múla