Til baka

Sextugur myndverkamaður

Sextugur myndverkamaður

Aðalsteinn Þórsson býður á sýningu í tilefni sextugsafmælisins

Myndlistarmaðurinn Aðalsteinn Þórsson fagnar sex tugum af lífi. Í tilefni af því hefur hann tekið til afnota fjölnotasalinn Deigluna að Kaupvangsstræti 23 á Akureyri helgina 18. - 20. október, fyrir uppákomu sýningu og hátíðahöld. Þar gefst gestum og gangandi kostur á að koma, njóta gleðjast og skapa.

Herlegheitin byrja föstudaginn 18. október kl. 17 með sammálun, sem er þáttökugjörningur. Þá verður málað 40 m2 málverk á gólfi Deiglunnar, með frjálsri þáttöku gesta. Nú þegar hefur harðsnúið lið listamanna boðað þáttöku sína í viðburðinum. Málað verður eftir forskrift svokallaðrar Sammálunar sem var praktíseruð á Tilraunakvöldum í listum, sem Myndlistarfélagið og Gilfélagið stóðu fyrir á árunum 2020 - 2022 og þóttu einkar vel heppnuð. Við trúum því að þetta sé stærsta málverk á Akureyri og þótt víðar væri leitað, nema sýnt verði fram á annað. Verkið verður svo hengt á veggi Deiglunnar þegar það verður orðið þurrt og verður sýnt það sem eftir verður helgarinnar og opnar sýningin kl. 15 á laugardaginn með léttum veitingum. Mögulega verður bætt við einhverjum laumuverkum ef veggpláss leyfir.

Á sunnudaginn 20. sjálfan afmælisdaginn opnar sýningin kl. 15.00 í boði verður kaffi og sætabrauð.

Aðalsteinn býður öll velkomin sem vilja fagna þessu tímamótum með honum eða eingöngu skoða afrakstur skemmtilegs listverkefnis.

Hvenær
laugardagur 15-18
Klukkan
15:00-18:00
Hvar
Deiglan Gilfélagið, Kaupvangsstræti, Akureyri
Verð
Ókeypis.