Les Frères Stefson kynnir í samstarfi við Hertz og XPENG: Retro Stefson á Græna hattinum!
Retro Stefson heldur tónleika á Græna hattinum laugardaginn 21. desember nk. Tónleikarnir eru hluti af endurkomu hljómsveitarinnar í N1 höllinni núna í lok desember. Retro Stefson hefur ekki komið saman í átta ár og var því ákveðið að taka generalprufu með áhorfendum og auðvitað kom ekki annað til greinar en að gera það á gamla heimavellinum: Græna hattinum!
Tónleikarnir hefjast kl. 21 stundvíslega og Miðasala hefst fim.28.nóv. kl. 10.00 á www.graenihatturinn.is.