Til baka

Pappírspokar og persónulegt hreinlæti

Pappírspokar og persónulegt hreinlæti

Myndlistarmaðurinn Aðalsteinn Þórsson sýnir
Pappírspokar og persónulegt hreinlæti.
Opnun: 28. mars, Skírdag kl. 18.00
Sýningin verður opin 29. mars - 1. apríl (páskahelgina) og 5. - 7. apríl,
14 - 17 alla dagana. 
í þessari innsetningu verða til sýnis munir úr Einkasafninu, langtíma verkefni Aðalsteins. Auk þess mun hann stunda málun og teikningu í innra herbergi Mjólkurbúðarinnar meðan á sýningu stendur. Þannig á sýningin sér tvær hliðar hina ytri og hina innri, þá eilífu togstreitu í lífi mannsins. Þetta má sjá sem tilraun til að búa til farsælt samhengi þar á milli - sem Aðalsteinn álítur eftirsóknarvert.
„Í verkefni mínu Einkasafninu, geng ég út frá því að afgangar neyslu minnar séu menningarverðmæti, á svipaðan hátt og litið er á hefðbundna sköpun, afganga hugans sem menningarverðmæti. Ég leitast við að halda til haga öllu því sem af gengur af minni daglegu neyslu“. Þetta segir Aðalsteinn vera megin inntak Einkasafnsins. Verkefnis sem hann hefur unnið að síðan um aldamótin síðustu. Í þessu verkefni vill hann gera sýnilega stærð einstaklingsins í umhverfinu, efla umhverfisvitund og vinna að sjálfbærni. Samtímis því að skapa nýja fegurðarupplifun þar sem samtvinnast náttúrulifun og menningarupplifun.
Aðalsteinn Þórsson f. 1964 á Kristnesi í Eyjafirði. 1989 hóf hann nám í Myndlistaskólanum á Akureyri. Hann lauk MFA námi frá Dutch Artinstitute, ArtEz árið 1998, þá Aki2 í borginni Enchede í Hollandi, Aðalsteinn hefur verið starfandi myndlistamaður síðan. Fyrst í Hollandi en hefur verið búsettur á Íslandi frá árinu 2016. Hann hefur haldið fjölda einkasýninga, tekið þátt í samsýningum og viðburðum auk þess að vera sýningarstjóri. Aðalsteinn hefur einnig látið að sér kveða í félagsmálum menningarinnar. Megin verkefni hans er þó Einkasafnið, umhverfisverk sem hann starfrækir í gróðurvin í Eyjafjarðarsveit 10 km. sunnan Akureyrar.
Hvenær
fimmtudagur, mars 28
Klukkan
18:00-21:00
Hvar
Mjólkurbúðin, Kaupvangsstræti, Akureyri
Verð
Ókeypis.