Mysingur III
Kl. 17.00-20.00 - Mysingur er tónleikaröð sem fram fer í Mjólkurportinu á bakvið Lisatsafnið á Akureyri.
Mysingur líkur þessu sumri með dúndurdagskrá á Akureyrarvöku. Fram koma:
- Drengurinn Fengurinn
- Teitur Magnússon
- Dr. Gunni ásamt hljómsveit
Ketilkaffi stendur vaktina við bjórdæluna og grillið og boðið verður upp á smassborgar og vegan vefjur.
DJ Vélarnar heldur uppi stemningunni fyrir og eftir tónleika með leikandi smellum og angistarperlum samtímans.
Verkefnastjóri er Egill Logi Jónasson.
Verkefnið er unnið í samstarfi við Ketilkaffi og Listasafnið á Akureyri
Viðburðurinn er styrktur af Akureyrarvöku.