Til boða stendur að mála, gera skúlptúra úr tré, pappír og endurunnu efni. Einnig verður hægt að þrykkja einþrykk og hæðarprent með einföldum efnum á pappír. Myndlistarmenn og kennarar leiðbeina. Börnin geta komið og verið eins lengi eða stutt og þau vilja og prófað ýmsa miðla.
Börnin geta tekið verkin með sér heim í dagslok.
Verkefnið er styrkt af Barnamenningarsjóði Akureyrarbæjar.
Skoðaðu viðburðadagatal hátíðarinnar HÉR