Til baka

Morðgáta með Stefáni Mána

Morðgáta með Stefáni Mána

Staðurinn er Disco 54 - tíminn er níundi áratugurinn - viðburðurinn er afmæli hins eina sanna Dr. Discos. Á meðan veislunni stendur er framið MORÐ, sem gestir verða að ráða fram úr og komast að því hver hinn seki er.
Glæpasagnahöfundurinn Stefán Máni stýrir leiknum.
 
HVAR: Amtsbókasafnið á Akureyri
HVENÆR: þriðjudagskvöldið 5. nóvember kl. 20-22
 
Til að skapa rétta stemningu hvetjum við þátttakendur til að koma klædda í anda áratugarins. Að skráningu lokinni verður hlutverkum útdeilt í tölvupósti, þar sem þið fáið handrit persónu ykkar og tillögur að klæðaburði.
 
Einungis er um 14 hlutverk að ræða og því mikilvægt að þátttakendur skrái sig til leiks.
Skráningarhlekkur hér https://forms.gle/5qFgAjB1mLYGT7xs9
 
 
Við hvetjum ykkur til að mæta með umhverfisvænum hætti á viðburðinn. Frítt er í strætó og allir strætisvagnar stoppa í miðbænum í 300 metra fjarlægð frá safninu.
 
Viðburðurinn er hluti af Glæpafárinu mikla og er styrktur af Bókasafnasjóði.
Hvenær
þriðjudagur, nóvember 5
Klukkan
20:00-22:00
Hvar
Amtsbókasafnið, Brekkugata, Akureyri