Til baka

Mannlíf, ljósmyndasýning ÁLFkvenna í Lystigarðinum á Akureyri

Mannlíf, ljósmyndasýning ÁLFkvenna í Lystigarðinum á Akureyri

ÁLFkonur opna ljósmyndasýningu í Lystigarðinum í þrettánda skiptið

Mannlíf - ljósmyndasýning

ÁLFkonur opna ljósmyndasýninguna Mannlíf við LYST kaffihúsið.

Í þrettánda sinn bjóða ÁLFkonur, í samvinnu við Lystigarðinn á Akureyri og LYST kaffihús upp á ljósmyndasýningu við útsvæðið og veitingasöluna í garðinum. Að þessu sinni eru það Norðurorka og Menningarsjóður Akureyrar sem styrkja ÁLFkonur til sýningarinnar og stuðla þannig að ríkulegu menningarlífi í Lystigarðinum.
Að þessu sinni takast þær á við mannlíf  eins og það birtist þeim í athöfnum og hugðarefnum fólks í hinu bjarta norðri.

ÁLFkonur er félagsskapur kvenna með ljósmyndun að áhugamáli og hefur starfað saman sem hópur frá árinu 2010
Hópurinn hefur  haldið fjölmargar ljósmyndasýningar víða um Akureyri, Eyjafjörð, á Húsavík og í Edinborg Skotlandi.
Að þessu sinni eru þátttakendur :
Agnes Heiða Skúladóttir, Berglind H. Helgadóttir, Gunnlaug Friðriksdóttir, Guðný Pálína Sæmundsdóttir, Hafdís G. Pálsdóttir, Halla S. Gunnlaugsdóttir, Helga H. Gunnlaugsdóttir, Hrefna Harðardóttir, Inga Dagný Eydal, Kristjana Agnarsdóttir, Lilja Guðmundsdóttir, Linda Ólafsdóttir og Margrét Elfa Jónsdóttir.

https://www.facebook.com/alfkonur
https://www.instagram.com/alfkonur/

Hvenær
31. maí - 31. maí
Hvar
Lystigarður Akureyrar, Eyrarlandsvegur, Akureyri