Til baka

Vitringarnir 3

Vitringarnir 3

Vinirnir, skemmtikraftarnir og söngvararnir Eyþór Ingi, Jógvan Hansen og Friðrik Ómar sameina nú krafta sína á jólavertíðinni með stórskemmtilegri tónleikasýningu í desember sem ber heitið VITRINGARNIR 3. Drengina þarf vart að kynna en þeir eru jú skemmtilega ólíkir, allskonar og hinsegin en umfram allt stórstjörnur í Klakksvík, í Færeyjum og á Dalvík. Gestir mega eiga von á smekklegri blöndu af gamanefni og tónlist en með þeim verður stórhljómsveit undir stjórn Ingvars Alfreðssonar. Hér er á ferðinni skemmtun fyrir pör, hjón, vinahópa, sistkyni, frændfólk, mága, svila, mægður, feðgin og fyrirtæki en umfram allt fyrir fólk sem vill hafa gaman á aðventunni og skemmta sér með bravúr!


- Fyrirspurnir og bókanir fyrir stærri hópa eða fyrirtæki (30 manns eða fleiri) sendist á bookings@rigg.is

- Sérstök forsala fyrir fylgjendur þeirra félaga verður 22. ágúst kl. 10:00 í gegnum heimasíðuna www.vitringarnir3.is og á samfélagsmiðlum þeirra.


Instagram:
Friðrik Ómar: fromarinn
Eyþór Ingi: eythoringimusic
Jógvan Hansen: jogvan.hansen.official

- Almenn miðasala hefst 29. ágúst kl. 10:00 á tix.is

Hljómsveit Vitringanna:
Ingvar Alfreðsson píanó og hljómsveitarstjórn
Reynir Snær Magnússon gítarar
Benedikt Brynleifsson trommur
Tumi Torfason trompet
Sigurður Flosason saxafónn og fl.
Einar Jónsson básúna
Diddi Guðnason slagverk
Jóhann Ásmundsson bassi

Hljóðmeistari:
Björgvin Sigvaldason


Ljósameistari:
Freyr Vilhjálmsson


Sviðshreyfingar:
Selma Björnsdóttir


Verkefnastjórn:
Haukur Henriksen
Björgvin Sigvaldason

Förðun og hár:
Helma Þorsteinsdóttir

Framleiðendur:
Eyþór Ingi Gunnlaugsson
Friðrik Ómar Hjörleifsson
Jógvan Hansen




Hvenær
laugardagur, desember 7
Klukkan
21:00-23:00
Hvar
Hof, Strandgata, Akureyri