Til baka

Upptakturinn 2025

Upptakturinn 2025

UPPTAKTURINN 2025

OPNUM FYRIR UMSÓKNIR 10. JANÚAR. Umsóknarfresti lýkur 16. febrúar á miðnætti.
Hlökkum mikið til að taka á móti hugmyndum að tónlistarverkum ykkar!

 

Upplýsingar

Upptakturinn er samstarfsverkefni Menningarhússins Hofs og Hörpu. Áhersla er lögð á að hvetja börn og ungmenni til að semja tónlist og styðja þau í fullvinnslu hugmyndar. Ungmennin sem komast áfram vinna að útsetningum undir leiðsögn reyndra tónlistarmanna. Að þessu ferli loknu verða til ný tónverk sem flutt verða á tónleikum og varðveitt með upptöku.

Markmið Upptaktsins
Sköpun – að stuðla að tónsköpun ungs fólks og hvetja börn og ungmenni til að semja eigin tónlist.
Skráning – að aðstoða börn og ungmenni við að fullvinna hugmyndir sínar í vinnusmiðju og varðveita þannig tónlistina.
Flutningur – að gefa börnum og ungmennum tækifæri á að upplifa eigin tónlist í flutningi fagfólks við kjöraðstæður á tónleikum í Menningarhúsinu Hofi.

Svona tek ég þátt:

    • Upptakturinn er fyrir börn og ungmenni í 5.-10. bekk í grunnskólum á Norðurlandi eystra.
    • Lengd tónverks, óháð tónlistarstíl, skal vera 1-5 mínútur að hámarki, annaðhvort einleiks eða samleiksverk fyrir allt að 6 flytjendur.
    • Skila þarf tónsmíð, eða hugmynd að verki, inn í hefðbundinni eða grafískri nótnaskrift, texta eða upptöku. Upptakan skal vera í mp3.
    • Sendist rafrænt á upptakturinn@mak.is ásamt nafni höfundar, aldri, tölvupóstfangi, grunnskóla, titli verks og verkinu sjálfu ásamt nafni forrráðamanns, símanúmeri og tölvupóstfangi.

Hér má sjá myndbönd frá tónleikum Upptaktsins 2024 þar sem atvinnuhljóðfæraleikarar léku verk eftir ungmennin 10 sem komust í Upptaktinn það ár

Dómnefnd
Dómnefnd velur þátttakendur úr hópi umsókna. Fagfólk í tónlist situr í dómnefnd. Allt að 10 verk verða valin til þátttöku.

Vinnusmiðja með fagfólki
Valin verk verða fullunnin með fagfólki í tónlist í tónsmiðju. Einstaklingsbundin vinnusmiðja fer fram í Hofi, sem og  sameiginleg vinnusmiðja, með þeim umsækjendum sem valdir eru til þátttöku.

Tónleikar
Tónleikar verða haldnir í kjölfar vinnusmiðja og er því nokkurs konar uppskeruhátíð þátttakenda. Tónleikarnir verða haldnir 27. apríl kl 17 í Hamraborg í Hofi, þeir eru hluti af Barnamenningarhátið á Akureyri. Þangað eru allir VELKOMNIR og það er frítt inn. 

Tónsköpunarverðlaunin
Öll verkin sem flutt verða á tónleikunum hljóta tónsköpunarverðlaunin: Upptakturinn 2025.

 

Allar nánari upplýsingar hérna

Verkefnastjóri Upptaktsins er Kristín Sóley Björnsdóttir sem veitir fúslega allar nánari upplýsingar í gegnum upptakturinn@mak.is og í síma 450-1007.

Tónlistarstjóri: Greta Salóme tónlistarkona.

Útsetning verka með þátttakendum og leiðbeinendur í vinnusmiðjum: Greta Salóme tónlistarkona og Kristján Edelstein tónlistarmaður.

Hvenær
10. janúar - 17. febrúar