Til baka

Saknaðarilmur

Saknaðarilmur

  • Magnaður efniviður Elísabetar Jökulsdóttur öðlast nýtt líf á leiksviðinu í meðförum sama listræna teymis og skapaði tímamótasýninguna Vertu úlfur. Sú sýning hlaut einróma lof, sópaði að sér verðlaunum og hreif þjóðina svo mjög að hún var sýnd í þrjú leikár á Stóra sviðinu. Í þessari sýningu hafa þau Unnur Ösp og Björn Thors endaskipti á hlutverkum; nú er það Unnur sem leikur en Björn heldur um leikstjórnartaumana.​
  • Sýningin fékk fjölda verðlauna á Grímunni 2024, þ.á.m. sýning ársins, leikrit ársins, leikkona ársins í aðalhlutverki (Unnur Ösp Stefánsdóttir) og tónlist ársins (Ólöf Arnalds og Skúli Sverrisson)
  • Þegar fullorðin skáldkona missir móður sína er komið að stóra uppgjörinu. Nú fyrst er hún tilbúin til þess að horfast í augu við erfiða æsku sína, föðurmissi, geðveikina, ástina og sturlað lífshlaup sitt. Af hverju náðu þessar tvær konur aldrei sambandi, þó að þær hafi deilt öllu lífi sínu, og reynt að horfast í augu í gegnum sorgir og sigra? ​
  • Leikari: Unnur Ösp Stefánsdóttir
    Leikstjórn: Björn Thors
    Höfundur: Unnur Ösp Stefánsdóttir, byggt á bókum Elísabetar Jökulsdóttur

    Leikmynd: Elín Hansdóttir
    Búningar: Filippía I. Elísdóttir
    Ljósahönnun: Björn Bergsteinn Guðmundsson
    Hljóðhönnun: Skúli Sverrisson, Aron Þór Arnaldsson og Ólöf Arnalds
    Tónlist: Ólöf Arnalds og Skúli Sverrisson
    Sviðshreyfingar: Margrét Bjarnadóttir

Hvenær
27. - 29. mars