Til baka

PINK FLOYD í 60 ár

PINK FLOYD í 60 ár

Forsala fyrir póstlista Dægurflugunnar 26. mars. Skráning á póstlista hér.

Heiðurstónleikar

Upplifðu töfra einnar merkustu hljómsveitar sögunnar

Komdu með okkur í einstakt ferðalag í gegnum tímalaus lög og áhrifamikla sögu Pink Floyd, sem hefur mótað tónlistarheiminn í sex áratugi.
"Wish You Were Here", "Comfortably Numb" og "Another Brick in the Wall" eru hluti af þeim tónlistararfi sem Pink Floyd hefur skapað og lifir áfram kynslóð fram af kynslóð.
Tónleikar sem heiðra þessa einstöku hljómsveit með stórbrotinni, ljósa- og hljóðupplifun sem á engan sinn líka.
Þetta er kvöld sem enginn aðdáandi vill missa af!

Flytjendur:

Matthías Matthíasson - Söngur og gítar
Magni Ásgeirsson – Söngur og gítar
Einar Þór Jóhannsson – Gítar
Ólafur Hólm Einarsson – Trommur og slagverk
Ingimundur Óskarsson - Bassi
Haraldur V. Sveinbjörnsson – Hljómborð/Raddir
Þorbjörn Sigurðsson – Hljómborð/Raddir

Taktu þátt í því að fagna 60 ára afmæli Pink Floyd

Hvenær
laugardagur, október 18
Klukkan
21:00-23:00