Til baka

Ooog aksjón!

Ooog aksjón!

Steps dancecenter

Steps Dancecenter kynnir: Oog aksjón! Leikstjórar okkar tíma 🎬✨

Kvikmyndatöfrar og danssameinast á sviði þegar nemendur Steps Dancecenter stíga á stokk í stórglæsilegri vorsýningu ársins! Í sýningunni Oog aksjón! fögnum við frábærum leikstjórum sem hafa skapað ógleymanlegar kvikmyndir sem hafa hrifið okkur – unga sem aldna.

Nemendur frá 2 ára aldri og upp úr túlka í dansi valin atriði úr kvikmyndum eftir nokkra af áhrifamestu leikstjórum samtímans. Við fáum að upplifa allt frá hasar og drama til ævintýra og tilfinningar – allt gegnum hreyfingu, tónlist og ímyndunarafl. 🎞️

Innblástur sýningarinnar kemur frá kvikmyndum leikstjóra á borð við: - Quentin Tarantino (Pulp Fiction) - Baz Luhrmann (Moulin Rouge, The Great Gatsby) - Joseph Kosinski (Top Gun: Maverick) - Pete Docter (Inside Out) - John Lasseter (Toy Story) - Francis Lawrence (The Hunger Games) - Danny Boyle (Slumdog Millionaire) - Francis Ford Coppola (Bram Stoker’s Dracula) - George Lucas (Star Wars) - Tim Burton (Beetlejuice) - Mark Osborne & John Stevenson (Kung Fu Panda)

Við lofum fjölbreytni, sköpunargleði og ógleymanlegri sýningu þar sem allir nemendur fá að njóta sín á sviðinu. Komdu og fagnaðu með okkur kvikmyndalist og dansi á einstakan hátt! 🎟️

Tryggðu þér sæti og vertu vitni að töfrum sviðsins! Lights, camera… dance!

Hvenær
sunnudagur, maí 18
Klukkan
12:00-14:00