Til baka

Óbærilegur léttleiki knattspyrnunnar

Óbærilegur léttleiki knattspyrnunnar

Sýning fyrir alla sem elska og hata fótbolta

  • Þorleifur Aron, kallaður Doddi, fráskilinn karlmaður á fimmtugsaldri og Óli Gunnar, yngri bróðir hans hittast til að horfa á alla leiki Manchester United saman í sófanum. Leikir enska liðsins eru fastinn sem gefur lífi þeirra lit en einnig sá tími sem þeir geta eytt saman og fengið frið frá amstri dagsins. Yfir leiknum fá tilfinningar þeirra lausan tauminn og í gegnum leikinn fá þeir útrás auk þess sem óhófleg drykkja þeirra er réttlætanleg. Þennan tiltekna laugardag sem verkið gerist bregður út af vananum er Benedikt Hafberg, hinn nýi kærasti barnsmóður Dodda ásamt söngvaranum Valdimar bætast óvænt í hópinn að horfa á leikinn. Spennan innan sem utan vallar eykst sem því nemur og úr verður óútreiknanleg atburðarás sem spannar 90 mínútur. Því líkt utan vallar sem innan þá getur allt gerst í heimi knattspyrnunnar.​
  • Óbærilegur léttleiki knattspyrnunnar er sýning fyrir alla sem elska og hata fótbolta.​

    LEIKARAR: Albert Halldórsson, Ólafur Ásgeirsson, Starkaður Pétursson, Sveinn Ólafur Gunnarsson og Valdimar Guðmundsson

  • Leikstjóri: Viktoría Blöndal

    Höfundar: Ólafur Ásgeirsson og Sveinn Ólafur Gunnarsson

    Hugmynd: Albert Halldórsson, Ólafur Ásgeirsson og Viktoría Blöndal

    Leikmynd og búningar: Sólbjört Vera Ómarsdóttir

    Tónlist: Valdimar Guðmundsson

    Ljósahönnun: Ásta Jónína Arnardóttir og Juliette Louste

    Sviðshreyfingar: Erna Rún Fritzdóttir

    Dramatúrg: Lóa Björk Björnsdóttir

Hvenær
27. febrúar - 2. mars
Klukkan
20:00-22:00