Til baka

Harmonikan heiðruð

Harmonikan heiðruð

Verðandi

Harmonikan hefur snert hjörtu Íslendinga frá því hún kom til landsins og frá miðri nítjándu öld og langt fram á tuttugustu öld var hún eitt helsta danshljóðfæri landans. Hún á sér sterka taug í þjóðarsálinni og eiga margir góðar minningar um harmonikuleik fjölskyldumeðlima og vina. Áheyrendur fá að kynnast því magnaða hljóðfæri sem harmonikan er og hvernig hægt er að leika á hana hinar ýmsu tegundir tónlistar. Á tónleikunum verður flutt fjölbreytt tónlist allt frá hefðbundinni danstónlist til nútímatónlistar þar sem jafnvel er öskursungið við undirleik harmonikunnar.

Í tengslum við alþjóðadag harmonikunnar, sem er 6. maí ár hvert, heiðrum við harmonikuna og látum nikkutóna óma um Menningarhúsið Hof. Frá klukkan 14:30 geta gestir og gangandi heyrt harmonikuna óma á leið sinni um húsið þar sem hinir ýmsu harmonikuleikarar munu hita áheyrendur upp fyrir tónleikana. Á tónleikum í Hömrum klukkan 16:00 munu harmonikuleikarar á heimsmælikvarða flytja áheyrendum mismunandi stíla frá ólíkum tímabilum tónlistarsögunnar.

Skipuleggjendur viðburðarins og flytjendur eru: Hrund Hlöðversdóttir og Agnes Harpa Jósavinsdóttir

Meðal annarra flytjenda eru:
Flemming Viðar Valmundsson
Jón Þorsteinn Reynisson
Stórsveit Félags harmonikuunnenda í Eyjafirði

Viðburðurinn er styrktur af VERÐANDI listsjóð sem er samstarfsverkefni Akureyrarbæjar, Menningarfélagsins Hofs og Menningarfélags Akureyrar.

Hvenær
sunnudagur, maí 4
Klukkan
16:00-18:00