Til baka

Fúsi: Aldur og fyrri störf

Fúsi: Aldur og fyrri störf

  • Fúsi, aldur og fyrri störf, er heimildaleiksýning um Sigfús Sveinbjörn Svanbergsson. Í sýningunni fer Fúsi yfir ævi sína og valin atriði úr fjölbreyttu lífi hans eru færð í leik- og söngbúning með aðstoð leikara og söngvara.​
  • Sýningin fékk hvatningarverðlaunin á Grímunni 2024 ásamt því að Agnar Jón Egilsson hlaut verðlaun sem Leikstjóri ársins fyrir sýninguna.
  • Fúsi er húmoristi, fótboltaáhugamaður, leikari, söngvari og lífskúnstner sem minnir okkur á að lífið er alltaf þess virði að lifa því þó að stundum sverfi að. Hindranirnar í lífi Fúsa hafa eflt hann og hvatt hann til að lifa lífinu til hins ítrasta með fötlun sinni og njóta hvers einasta dags. Stundum er lífsreynsla þó þess eðlis að aldrei verður fyllilega hægt að komast yfir hana, sama hversu jákvæður og sterkur einstaklingur er.​
  • Sýningin byggir á viðtölum við Fúsa, sem Agnar Jón frændi hans og leikstjóri sýningarinnar tók við hann á meðan covid faraldrinum stóð. Tilurð sýningarinnar er því samband frændanna Fúsa og Agga og samverustundir þeirra.​

    LEIKARAR:
    Sigfús Sveinbjörn Svanbergsson, Agnar Jón Egilsson, Halldóra Geirharðsdóttir, Bergur Þór Ingólfsson og Egill Andrason

    Leikstjóri: Agnar Jón Egilsson

    Höfundar: Agnar Jón Egilsson og Sigfús Sveinbjörn Svanbergsson

    Leikmynd og búningar: Svanhvít Thea Árnadóttir

    Aðstoðarleikstjóri: Ástbjörg Rut Jónsdóttir

    Tónlistarmaður: Egill Andrason

    Aðstoð við söng: Gísli Magna

  • Í samstarfi við sviðslistaframleiðandann Monochrome og List án landamæra. ​
Hvenær
30. janúar - 3. febrúar
Klukkan
20:00-00:59