Til baka

From Ukraine with Love (Óperutónleikar)

From Ukraine with Love (Óperutónleikar)

Verðandi

Þessi viðburður hefur vakið mikla lukku á óperu hátíðum í Danmörku og Þýskalandi, bæði til að sýna stuðning til Úkraínu og ýta undir fjölbreytt og metnaðarfullt menningarstarf. Þetta eru sóló óperutónleikar þar Anastasiia syngur og undirleikur Malikova Maryna finna saman sína fínustu tóna. Lög verða sungin á mismunandi tungumálum og frá nokkrum af frægustu óperum samtímans.

Anastasiia hóf tónlistarmenntun sína þegar hún var 13 ára þegar hún fór í tónlistarskóla í Kyiv. Síðan þá hefur hún menntað sig sem óperusöngkona. Hún heldur oft tónleika víðsvegar um Úkraínu og erlendis. 2016 -2017 vann hún í tónlistarskólanum í Kiev sem tónlistarkennari og sérkennari í óperusöng, síðan 2017 hefur hún verið starfandi hjá Taras Shevchenko leikhúsi Kyiv National of Opera and Ballet og alveg þanhað til að stríðið brast á!

Á ferilskránni er mikill fjöldi ópera og hefur hún diplómapróf frá National Pedagogical Dragomanov háskólanum og útskrifaðist sem tónlistarkennari, kórstjóri og óperusöngkona.

Ásamt því hefur hún meistaragráðu frá Úkraínu og er núna að klára meistaragráðu númer 2 Düsseldorf at the music academy Rubinstein. Á dvöl sinni í Danmörku hefur Anastasiia þegar náð að syngja í Bistrup Kirke, Herning Kirke, Hune Kirke og í Musikhuset í Álaborg, Árósum, Dusseldorf í Þýskalandi ásamt mörgum öðrum stöðum.

Síðustu 2 ár eftir að Anastasiia flúði stríðið, hefur hún átt Íslenskan vin sem kynntist henni í Danmörku en hann býr og vinnur nú á Íslandi og eru þau að reyna að finna vettvang fyrir Anastasiiu að blómstra á. En Anastasiia Andrukhiv hefur fullan áhuga á að búseta sig á Íslandi ef hún finnur möguleika til að koma list sinni á framfæri.

Vinkona hennar Anastasiiu hún Malikova Maryna kemur einnig frá Úkraínu og mun sjá um undirleik á þessum viðburði en hún hefur spilað undir hjá Anastasiu áður, Maryna Hún starfaði sem undirleikari við National Pedagogical Dragomanova háskólann og hefur starfað sem undirleikari á skemmtiferðaskipum síðan stríðið hófst. 

Miðasala hefst síðar.

Viðburðurinn er styrktur af VERÐANDI listsjóð sem er samstarfsverkefni Akureyrarbæjar, Menningarfélagsins Hofs og Menningarfélags Akureyrar.

Hvenær
sunnudagur, september 8
Klukkan
17:00-18:00