Til baka

Forðabúr hjartans - Sýning 43 félaga í Myndlistafélaginu í Hofi

Forðabúr hjartans - Sýning 43 félaga í Myndlistafélaginu í Hofi

Á þessari sýningu fáum við að sjá myndlist eftir fjörutíu og þrjá ólíka myndlistarmenn sem veita okkur innsýn í myndheim sinn.

Hér á Akureyri og nágrenni starfar fjölbreyttur hópur ólíkra myndlistarmanna sem endurspeglar gróskuna á sviði myndlistar. Myndlistin hefur sitt einstaka tjáningarform sem endurómar á óteljandi mismunandi vegu og tjáir sjónarhorn, viðhorf og tilfinningar, en fyrst og fremst er myndlist sjónræn upplifun og hún er okkur mikilvæg því hún nærir, vökvar, frjóvgar og býr til forðabúr, forðabúr hjartans.

Á þessari sýningu fáum við að sjá myndlist eftir fjörutíu og þrjá ólíka myndlistarmenn sem veita okkur innsýn í myndheim sinn.

Myndlistarfélagið var stofnað í janúar árið 2008 og er eitt aðildarfélaga Sambands íslenskra myndlistarmanna. Í því eru nú tæplega 90 myndlistarmenn, flestir búsettir á Akureyri eða á Norðurlandi, en félagið er opið öllum myndlistarmönnum. Í Myndlistarfélaginu er fjölbreyttur hópur ólíkra myndlistarmanna sem endurspeglar gróskuna í myndlist á landinu. Myndlistarfélagið rekur Mjólkurbúðina – sal Myndlistarfélagsins í Listagilinu á Akureyri og kappkostar að bjóða upp á framsæknar og fjölbreyttar sýningar erlendra og íslenskra listamanna ásamt því að sýna verk félagsmanna.

Efnisskráin er hér 

Hér má sjá nöfn listafólksins sem eiga verk á sýningunni // Here's a list of the names of the artists who have a piece at the exhibition:
 
Rósa Kristín Júlíusdóttir
Karl Guðmundsson
Rósa Njálsdóttir
Anna Gunnarsdóttir
Hadda
Ragnheiður Björk Þórsdóttir
Karolína Baldvinsdóttir
Sara Sif
Jóna Bergdal
Elísabet Ásgrímsdóttir
Jónína Björg Helgadóttir
Ásta Bára Pétursdóttir
Guðbjörg Ringsted
Sigurður Mar
Lára Stefánsdóttir
Herdís Björk Þórðardóttir
Sveinbjörg Hallgrímsdóttir
Egill Logi Jónasson
Pia Rakel Sverrisdóttir
Aðalsteinn Þórsson
Erwin van der Werve
Gillian Pokalo
Ólafur Sveinsson
Borghildur Guðmundsdóttir
Kristinn G. Jóhannsson
Brynhildur Kristinsdóttir
Björg Eiríksdóttir
Sigrún Birna Sigtryggsdóttir
Thora Sólveig Bergsteinsdóttir
Ragney Guðbjartsdóttir
Jonna Jónborg Sigurðardóttir
Hrefna Harðardóttir
Jónína Mjöll Þormóðsdóttir
Karín M. Sveinbjörnsdóttir
Arna Guðný Valsdóttir
Brynja Harðardóttir Tveiten
Steinn Kristjánsson
Dagrún Matthíasdóttir
Joris Rademake
Guðrún Pálína Guðmundsdóttir
Gunnar Kr. Jónasson
Hallgrímur Ingólfsson
Freyja Reynisdóttir
Hvenær
4. maí - 23. ágúst
Hvar
Hof, Strandgata, Akureyri