Til baka

Maideniced- Iron Maiden heiðurstónleikar

Maideniced- Iron Maiden heiðurstónleikar

Í tilefni 40 ára afmælis Powerslave er blásið til heiðurstónleika.

Um þessar mundir eru 40 ár síðan risarnir í Iron Maiden gáfu út meistarstykkið Powerslave. Af þessu tilefni mun MaidenIced heiðurshljómsveitin blása til tónleika og flytja öll lög af plötunni í bland við klassíska Maiden slagara. Efnisskráin verður því ekki af verri endanum og ætti enginn að láta þetta framhjá sér fara.

MaidenIced er skipuð reynsluboltum úr íslensku rokksenunni og mikill metnaður er lagður í að gera tónlist Iron Maiden góð skil. Hljómsveitin hefur spilað áður á Græna hattinum við góðan orðstír og löngu tímabært að stíga aftur á stokk norðan heiða.

Hvenær
laugardagur, september 14
Klukkan
21:00-23:30
Hvar
Græni hatturinn, Hafnarstræti, Akureyri
Verð
5500