Það líður mislangt á milli tónleika Ljótu hálfvitanna á Græna hattinum af því stundum er alls konar að flækjast fyrir í lífinu. Nú er liðið (allt of) langt síðan síðast þannig að Hálfvitar mæta dýrvitlausir og munu skilja sálir sínar og ólíklegustu líkamsparta eftir á sviðinu að tónleikum loknum. Eitthvað sem ekkert ætti að missa af.