Ljótu Hálfvitarnir
Ljótu Hálfvitarnir fagna sjómannadagshelginni á Græna hattinum.
Einn af kostum sjómannadagshelgarinnar er að þá er nánast garanterað Hálfvitar eru allir í landi sem aftur stóreykur líkurnar á að þeir haldi tónleika. Annar fylgifiskur hennar er að líkurnar á flóði af sjómannalögum eykst um allan helming. Sama gildir um líkurnar á koddaslag og naglaboðhlaupi sem eru íþróttagreinar sem óreglulega er keppt í þegar Hálfvitar koma saman. Enda óreglumenn.