Til baka

Ljóð í hljóði

Ljóð í hljóði

Feðgarnir Þórarinn og Halldór Eldjárn tvinna saman ljóðum og tónlist.

Feðgarnir Þórarinn og Halldór Eldjárn flytja dagskrá í Davíðshúsi þar sem þeir tvinna saman ljóð Þórarins og tónlist Halldórs.

Þórarin Eldjárn þarf vart að kynna enda ljóðlist hans „orðin íslensk klassík“ eins og Sjón kemst að orði í kynningu á bókinni 100 kvæði, sem nýverið kom út í tilefni af 50 ára höfundarafmæli Þórarins.

Halldór Eldjárn er tónlistarmaður og forritari. Í sköpun sinni spinnur hann vef úr þessum tveimur þráðum svo úr verður stór hljóðheimur. Halldór hefur komið víða við unnið með ýmsum listamönnum s.s. Ólafi Arnalds, GDRN og Björk. Hann stofnaði hljómsveitina Sykur ásamt félögum sínum árið 2008 sem gefið hefur út þrjár hljómplötur. Fyrsta sólóplata hans kom út árið 2019 og ber nafnið Poco Appollo.

Velkomin á ljóð í hljóði fimmtudaginn 25. júlí kl. 20 í Davíðshúsi, Bjarkarstíg 6 á Akureyri.

Aðgangseyrir aðeins 1000 kr. – ókeypis fyrir handhafa safnapassa Minjasafnsins á Akureyri.

Hvenær
fimmtudagur, júlí 25
Klukkan
20:00-21:15
Hvar
Davíðshús - Skáldið frá Fagraskógi, Bjarkarstígur, Akureyri
Verð
1000 kr - ókeypis fyrir ársmiðahafa