Föstudaginn 26. apríl verða haldnir Kvæðatónleikar á Hótel Natur í Eyjafirði.
Meðlimir kvæðafélaga víðs vegar að af landinu kveða sér hljóðs og hægt verður að njóta þess að hlusta á ný ljóð og gamlar stemmur.
Te, kaffi og konfekt verður á boðstólum og við hlökkum til þess að njóta góðrar kvöldstundar með menningararfleifðina okkar í forgrunni.
Aðgangseyrir: 1000 kr