Til baka

Jónas Sig & Ritvélar Framtíðarinnar

Jónas Sig & Ritvélar Framtíðarinnar

Jónas Sig & Ritvélar framtíðarinnar loksins aftur á Græna Hattinum.

Jónas Sig heldur tónleika á Græna Hattinum 27. desember næstkomandi. Á þessum tónleikum verður Jónas með Ritvélar framtíðarinnar með sér sem er stórsveit skipuð einvala tónlistarfólki: Arnar Gíslason á trommur, Guðni Finnsson á bassa, Ómar Guðjónsson á gítar, Tómas Jónsson á orgvélar og syntha, Rósa Guðrún Sveinsdóttir sem syngur og spilar á saxafón og Steinar Sigurðarson á saxafón. Þessi stórsveit hefur ekki komið saman lengi og það verður því einstak tækifæri að upplifa hinn risavaxna hljóm og kraft Ritvélanna. Eitthvað sem enginn gleymir eftir að hafa upplifað. Sérstaklega á Græna Hattinum!

Hvenær
föstudagur, desember 27
Klukkan
21:00-23:30
Hvar
Græni hatturinn, Hafnarstræti, Akureyri
Verð
7500