Til baka

Jólatorg á Akureyri

Jólatorg á Akureyri

Velkomin í sannkallaða jólastemningu á Ráðhústorgi
Velkomin í sannkallaða jólastemningu á Ráðhústorgi. Jólatorgið er opið laugardag og sunnudag frá kl. 14-17.
Í skreyttum jólahúsum verður til sölu ýmis varningur sem tengist hátíðarhöldunum með einum eða öðrum hætti og boðið verður upp á skipulagða viðburði fyrir börn og fullorðna alla daga sem Jólatorgið er opið.
 
Dagskrá laugardaginn 21. desember:
Kl. 14.00: Söluaðilar eru með jólalegan varning í skreyttum jólahúsum.
Kl. 14.00: Jólalegur sölublás fyrir utan Vamos.
Kl. 14.30: Hvolpasveitin kemur í heimsókn á Jólatorgið.
Kl. 15.00: Kirkjukór Akureyrarkirkju syngur við verslunina Centro.
Kl. 15.30: Jólasveinarnir mæta í Pennann.
 
Dagskrá sunnudaginn 22. desember:
Kl. 14.00: Söluaðilar eru með jólalegan varning í skreyttum jólahúsum.
Kl. 14.30: Hvolpasveitin mætir aftur.
Kl. 15.15: Jólasveinarnir heimsækja Jólatorgið.
Kl. 16.00: Kirkjutröppurnar við Akureyrarkirkju opnaðar.
 

Annað í boði í miðbænum:

  • Fornbókabúðin Svartar bækur að Strandgötu 11b verður opin laugardag og sunnudag milli klukkan 12-17.
  • Verslunin Centro verður með opið til klukkan 18 á sunnudaginn og á Þorláksmessu til klukkan 22.
  • Sykurverk Café verður með lengri opnun um helgina.
  • Origo verður með jólaopnun á laugardeginum.
 
Upplýsingar um Jólatorgið má finna á www.jolatorg.is
Hvenær
21. - 22. desember
Klukkan
14:00-17:00
Hvar
Ráðhústorg, Akureyri
Verð
Ókeypis