Við leggjum af stað frá Akureyri kl. 08:00 og höldum austur að Dettifossi en á leiðinni er stutt þægindastopp í Mývatnssveit. Við gefum okkur góðan tíma til að skoða tvo mikilfenglega fossa, Dettifoss og Selfoss og nánasta umhverfi þeirra. Því næst gerum við stutt útsýnisstopp við Hafragilsfoss áður en haldið er í Hólmatungur en þar hefst 8 km ganga um undraheima Jökulsárgljúfurs að Hljóðaklettum. Þeir sem kjósa styttri göngu skoða sig um í Hólmatungum og fara svo með rútunni í Hljóðakletta. Í Hjóðaklettum er hægt að velja um mismunandi gönguleiðir:
Frá Hljóðaklettum er ekið sem leið liggur í Ásbyrgi en þar er gengið eftir þægilegum stígum. Hægt að velja stutta göngu að Botnstjörn eða aðeins lengri hring um innsta hluta Ásbyrgis.
Frá Ásbyrgi er ekið um Kelduhverfi og Tjörnes til Húsavíkur en þar verður stoppað í tvær klukkustundir. Á Húsavik hafa þátttakendur frjálsan tíma en þeir geta t.d. farið í Sjóböðin eða sig um í bænum en þar erum margir spennandi veitingastaðir. Komið til Akureyrar milli kl. 20:00 og 21:00.