Til baka

Hjólabrettahittingur með leiðbeinendum (18+)

Hjólabrettahittingur með leiðbeinendum (18+)

Það er aldrei of seint að byrja.
Hér er um að ræða tveggja tíma hjólabrettahittingur/session þar sem byrjendur sem lengra komnir geta mætt og haft gaman í góðra manna hópi. Leiðbeinendur verða á staðnum til aðstoðar og gefa góð ráð. Tilvalið fyrir þá sem langar til að prófa eitthvað nýtt eða læra meira.

Leiðbeinandi verður meðal annars Eiki Helgason brettakappi, sem er Akureyringum vel kunnur, og á að baki langan feril í brettaíþróttum.
Mælt er með því að þátttakendur komi með sitt eigið hjólabretti en möguleiki er á að fá lánsbretti. Athugið að takmarkað magn lánsbretta er í boði.

*Mikilvægt er að mæta í góðum strigaskóm.

Hjólabrettahittingur með leiðbeinendum er fyrsta miðvikudag í hverjum mánuði.
_________________________________
Hittingur fyrir: Byrjendur sem lengra komna
Dagsetning: Fyrsta miðvikudag í hverjum mánuði
Tími: 20.00-22.00
Aldur: 18+
Staðsetning: Braggaparkið, Laufásgata 1
Þátttökugjald: 2.000 kr. (1.000 kr. fyrir korthafa) Greitt á staðnum. Posi eða peningur.
__________________________________
Viðburðurinn er í samstarfið við Old Skate bumbuhópinn.
Hvenær
miðvikudagur, nóvember 6
Klukkan
20:00-22:00
Hvar
Braggaparkið Skatepark, Laufásgata, Akureyri
Verð
2.000 kr. / 1.000 kr. fyrir korthafa