Til baka

Guðrún Árný - Singalong-partý

Guðrún Árný - Singalong-partý

Sjáumst í besta singalong partýi sem sögur fara af.

Guðrún Árný hefur stimplað sig inn með sínum margfrægu söngkvöldum þar sem margir tala um tónlistarupplifun sem skilur eftir sig bros á vör og lúin raddbönd. Gestir hafa allt um lagavalið að segja og eru stór hluti af upplifun kvöldsins.
Frábært tilefni fyrir vinahópinn, félagana, saumaklúbbinn að hittast og syngja og tralla.
Sjáumst í besta singalong partýi sem sögur fara af!

Hvenær
miðvikudagur, apríl 23
Klukkan
21:00-23:30
Hvar
Græni hatturinn, Hafnarstræti, Akureyri
Verð
3900