Dansaðu þig inn í sumarið með eigin sumarleikfangi undir stjórn Húlladúllunnar.
Á námskeiðinu gera þátttakendur leikfang sem þau geta mögulega sýnt barnabörnum sínum því í Húllasmiðjunni gera börnin húllahring með lífstíðarábyrgð, læra að nota hann á uppbyggilegan hátt og kynnast merkilegri sögu húllahringsins undir dyggri en skemmtilegri stjórn Húlladúllunnar.
Við setjum saman húllahring og skreytum með flottum og litríkum límböndum. Svo kennir Húlladúllan okkur að húlla.
*Athugið að það er æskilegt að tíu ára og yngri mæti í fylgd foreldra eða eldri systkina, sem geta aðstoðað þau við að skreyta hringinn svo hann verði sem best heppnaður.
Í lok námskeiðsins húllum við okkur á Leikfangahúsið, skoðum önnur leikföng og endum á að húlla í kös fyrir framan safnið.
Þátttökugjald er ekkert.
Skráning er nauðsynleg - minjasafnid@minjasafnid.is vinsamlegast gefið upp hæð barns svo það fái rétta stærð ef hring.
Nánari upplýsingar:
Dagsetning: 25. apríl
Tímasetning: 13.00 – 14.00
Staðsetning: Minjasafnið á Akureyri, Aðalstræti 58
Aðgangseyrir: Enginn aðgangseyrir
Annað: Skráning nauðsynleg
Viðburðurinn er styrktur af Barnamenningarsjóði Akureyrarbæjar og SSNE.
Skoðaðu viðburðadagatal hátíðarinnar HÉR