Til baka

Fused

Fused

Af Boadway á Græna hattinn
Af Broadway á Græna hattinn!
Leik- og sönghópurinn FUSED frá New York býður upp á stórkostlega tónlistarveislu á Akureyri í júlí. Þetta kvöld verður tryllt veisla af ‘mash-ups’ sem bera sama nafn, eins og t.d Hello (Lionel Richie, Adele, Beyoncé) og Just the Way You are (Billy Joel, Bruno Mars.) Farið verður yfir ýmsar tegundir tónlistar allt frá söngleikjalist yfir í rokk og djass. Ef þú hefur breiðan tónlistarsmekk og
elskar að gleyma þér í kraftmikilli lifandi tónlist þá eru þetta tónleikar fyrir þig!
Leik- og sönghópurinn FUSED samanstendur af þeim Danyele James, Melanie Puente Ervin, Michael Crowley og Eyfirðingnum Kristrúnu Jóhannesdóttur.
Gestasöngvarar verða þeir Chandler Sinks frá Texas og Akureyringurinn Brynjólfur Skúlason, en Kristrún og Brynjólfur hafa áður leitt saman hesta sína í Leikfélagi MA.
Hvenær
fimmtudagur, júlí 18
Klukkan
21:00-23:00
Hvar
Græni hatturinn, Hafnarstræti, Akureyri
Verð
3900