FLOTT slær til tónleika á Græna hattinum – í annað skipti á skírdag 28. mars!
FLOTT skaust upp á stjörnuhimininn árið 2021 með laginu ‘Mér er drull’ sem var valið popplag ársins á Íslensku tónlistarverðlaununum. FLOTT var einnig valin sem Bjartasta vonin. Síðan þá hafa þær gefið út hvern smellinn á fætur öðrum en lögin hafa ýmist náð inn á vinsældarlista Rásar 2 og Bylgjunnar. Nýlega gáfu þær út plötuna Pottþétt FLOTT en lagið Með þér líður mér vel af plötunni hefur ómað reglulega í útvarpstækjum landsmanna sem og Hún óganr mér og L'amour.
FLOTT eru Ragnhildur Veigarsdóttir á hljómborði, Sylvía Spilliaert á bassa, Eyrún Engilbertsdóttir á gítar, Sólrún Mjöll Kjartansdóttir á trommum og Vigdís Hafliðadóttir söngkona.