Fjölskyldustrandhreinsun
Á barnamenningarhátíð bjóða Amtsbókasafnið og Ocean Missions kátum krökkum og fjölskyldum þeirra að taka þátt í strandhreinsun í fjöru í nágrenni Akureyrar.
Allir þátttakendur fá hressingu til að gæða sér á í fjörunni.
Í standhreinsun sem þessari finnst ýmis efniviður sem við viljum alls ekki hafa í sjónum eða fjörunni en hentar aftur á móti mjög vel til listsköpunnar! Sem dæmi má nefna netakúlur, flotholt, netadræsur og ýmislegt plast og málmrusl.
Daginn eftir verður endurvinnslulistasmiðja á Amtsbókasafninu. Þar munu börn geta skapað listaverk úr því sem þau sjálf eða aðrir hafa tínt í fjörunni. Allur efniviður verður á staðnum, málning, posca-pennar, límbyssur og límstautar.
Þá verður einnig stutt og barnvæn fræðsla um sjávardýralífið í Eyjafirði og mikilvægi þess að hugsa vel um sjóinn okkar.
Að lokinni smiðju verður sett upp sýning með listaverkum barnanna og mun sýningin standa út aprílmánuð.
Viðburðurinn er einnig hluti af Viku 17, vitundarvakningarátaki bókasafna um Heimsmarkmiðin.