Sunnudaginn 22. september kl. 11-12 mun Heiða Björk Vilhjálmsdóttir, verkefnastjóri fræðslu og miðlunar, segja börnum og fullorðnum frá sýningunni Stranded - W(h)/ale a remake portfolio - More then this, even. Að lokinni leiðsögn er gestum boðið að búa til sitt eigið listaverk, innblásið af verkum sýningarinnar.
Aðgangur er ókeypis í boði Norðurorku sem styrkir sérstaklega safnkennslu og fræðslu fyrir börn og fullorðna í Listasafninu.