Til baka

Eyþór Ingi

Eyþór Ingi

Eyþór Ingi snýr aftur á Græna Hattinn

Eyþór Ingi snýr aftur á Græna Hattinn þar sem hann kemur fram einn síns liðs með gítarinn, píanóið og röddina að vopni. Eyþór er þekktur fyrir söngröddina, léttan húmor og eftirhermur sínar. Hann hefur komið víða við í gegnum árin, bæði komið fram og gefið út efni undir eigin nafni og með hljómsveitum og listamönnum á borð við Todmobile, Lay Low, Stuðmenn, Eldberg, Atómskáld og Rock Paper Sisters. Á tónleikunum má búast við efni af ferli Eyþórs í bland við lög sem hann hefur gert ódauðleg í lifandi flutningi eftir hina ýmsu listamenn. Komdu og upplifðu stemninguna sem aðeins verður til á Græna Hattinum.

Hvenær
laugardagur, júlí 20
Klukkan
21:00-23:30
Hvar
Græni hatturinn, Hafnarstræti, Akureyri
Verð
5500