Helgi þar sem vinkonur, vinir, pör, fjölskyldur og vinnufélagar njóta þess að gera eitthvað skemmtilegt saman.
Dekurdagar 2025 fara fram 2. - 5. október. Þetta er helgi þar sem vinkonur, vinir, pör, fjölskyldur og vinnufélagar njóta þess að gera eitthvað skemmtilegt saman.
Á Dekurdögum er hægt að velja úr fjölda viðburða sem auðga andann og gleðja hjartað, þar að auki bjóða margar verslanir og fyrirtæki upp á ýmiskonar uppákomur og dekurlega afslætti. Viðburðurinn er stór styrktaraðili Krabbameinsfélags Akureyrar og nágrennis.
(Dömulegir) Dekurdagar voru fyrst haldnir árið 2008.
Dagskrá 2025 kemur hér þegar nær dregur en fram að þeim tíma má skoða hvernig dagskráin var árið 2024 - skoða hér
Fylgist með á Facebook síðu Dekurdaga þar sem m.a. má sjá fjölda tilboða sem verða í boði.