Dansgleði í STEPS laugardaginn 27. ágúst.
Finnst ykkur eða ykkar barni gaman að dansa? Langar ykkur að prufa?
Við hjá Steps Dancecenter ætlum að bjóða upp á fría danstíma í tilefni Akureyrarvöku.
Kríladans er danstímar fyrir 2-5 ára. Kenndir verða stuttir dansar og gerðar skemmtilegar æfingar við tónlist.
Commercial eru danstímar fyrir 6-11 ára og 12 ára og eldri. Í þessum tímum er gerð stutt upphitun og svo kenndur dans við vinsæla tónlist.
Danstímar:
Kríladans kl. 11-11.40 - 2-5 ára
Commercial kl. 12-13 - 6-11 ára
Commercial kl 13.15-14.15 - 12 ára og eldri
Skráning sendist á stepsakureyri@gmail.com
Dansgleði út í eitt þar sem regla númer 1, 2 & 3 er að hafa gaman.
Verið velkomin
Viðburðurinn er hluti af Akureyrarvöku.
Nánar um Steps HÉR