Til baka

Búrfell í Mývatnssveit

Búrfell í Mývatnssveit

Búrfell í Mývatnssveit

Brottför kl. 8:30 á einkabílum (jeppum) frá FFA, Strandgötu 23. Jeppar (óbreyttir) eru nauðsynlegir frá Hverfjalli.
Safnast saman í bíla ef vill.
Fararstjórn: Þóroddur F. Þóroddsson og/eða Stefán Jakobsson

Ekið að Hverfjalli, lagt af stað þaðan kl. 9:30. Ekið suður með Lúdentsborgum og austur fyrir Hvannfell. Gengið frá Hvannfelli um slétt helluhraun (komið við hjá Lofthelli) og austur með rótum Búrfells að sunnan. Ganga á Búrfell upp brattar skriður, upp í gegnum hraunhaft í fjallsbrúninni og á hátindinn. Sama leið farin til baka. Á bakaleið er gengið um helluhraun, suður fyrir Sauðahnjúk og norður með Hvannfelli að bílastæði.

Vegalengd: 14 - 15 km. Gönguhækkun og lækkun um 600 m.

Verð: 5.200 / 6.900 kr. Innifalið: Fararstjórn.
Greitt er fyrir þessa ferð við brottför.

Hvenær
laugardagur, ágúst 23
Klukkan
08:00-18:00
Hvar
Strandgata, Akureyri
Verð
5.200 / 6.900 kr.