Til baka

Bríet

Bríet

Bríet, ein mest spennandi rödd íslenskrar tónlistar í dag.
Bríet er ein af mest spennandi röddum íslenskrar tónlistar í dag. Með einstaka blöndu af kraftmikilli útgeislun, hrífandi textum og sálríkri rödd nær hún að heilla áhorfendur hvert sem hún fer. Bríet er þekkt fyrir líflega sviðsframkomu, þar sem hún nýtur þess í botn að tengjast áhorfendum og skapa ógleymanlega stemningu á tónleikum sínum. Í þetta sinn stígur hún á svið á Græna Hattinum ásamt hljómborðsleikaranum Magnúsi Jóhanni og trommaranum Bergi Einari.
 
Hvenær
laugardagur, apríl 12
Klukkan
21:00-23:30
Hvar
Græni hatturinn, Hafnarstræti, Akureyri
Verð
7500