Til baka

Brek

Brek

Þjóðlagasveitin Brek á sínum fyrstu tónleikum á Græna hattinum
 

Hljómsveitin Brek var stofnuð haustið 2018. Sveitin leikur aðallega frumsamda, alþýðu skotna, tónlist með áhrifum úr ýmsum áttum, en meðlimir sveitarinnar leggja mikla áherslu á að skapa áhugaverða en notalega stemningu í hljóðfæraleik sínum. Auk þess er lögð áhersla á fjölskrúðuga notkun íslenskrar tungu í textagerð.

Hljómsveitina skipa Harpa Þorvaldsdóttir söngkona og píanóleikari, Jóhann Ingi Benediktsson gítarleikari og söngvari, Guðmundur Atli Pétursson mandólínleikari og Sigmar Þór Matthíasson bassaleikari. Sjá nánar á heimasíðu www.brek.is

 

Síðastliðin tvö ár hafa verið viðburðarík hjá Brek þrátt fyrir heimsfaraldur en hljómsveitin var tilnefnd til Íslensku tónlistarverðlaunanna í flokki þjóðlagatónlistar árið 2021 auk þess sem hún tók þátt í alþjóðlegu verkefni sem ber heitið Global Music Match og tók þar þátt fyrir Íslands hönd ásamt fleirum.

 

Þann 30.mars síðastliðinn hlaut Brek Íslensku tónlistarverðlaunin 2022 fyrir plötu ársins í flokki Þjóðlaga- og heimstónlistar ásamt því að samnefnd plata sveitarinnar var Plata vikunnar á Rás 2 í lok mars.

 

Sveitin hefur verið dugleg að leika á tónleikum innanlands og stefnir á frekara tónleikahald bæði innanlands og erlendis.

 

Hvenær
fimmtudagur, júlí 7
Klukkan
21:00-23:30
Hvar
Græni hatturinn, Hafnarstræti, Akureyri
Verð
3500