Til baka

Bogomil Font & Milljónamæringarnir

Bogomil Font & Milljónamæringarnir

Bogomil Font og Milljónamæringarnir loksins á Græna hattinum.
Ekki Þessi Leiðindi 30 ára! Bogomil Font hélt uppá 30 ára afmæli þessarar klassisku skífu nú í haust. Platan sú tröllreið öllu sumarið 1993 þegar Marsbúa cha cha cha var vinsælasta lagið á íslandi, en platan var endur útgefin á Vinyl síðasta sumar í tilefni afmælisins. Bogomil flutti erlendis haustið ´93 en hljómsveitin miljónamæringarnir héldu áfram með ýmsum öðrum söngvurum og voru eitt vinsælasta ballband íslandssögunnar til margra ára. Nú verður hlaðið í geggjaða afmælis tónleika og er um að gera að tryggja sér miða á tónleika með Bogomil og Miljónamæringunum þar sem platan "ekki þessi leiðindi" verður flutt í allri sinni geggjuðu heild! Hver veit nema nokkrir fleiri slagarar fái að fljóta með á Græna hattinum 9 og 10. febrúar næstkomandi!
Hvenær
föstudagur, febrúar 9
Klukkan
21:00-23:30
Hvar
Græni hatturinn, Hafnarstræti, Akureyri
Verð
6500