Til baka

Barna- og fjölskylduferð. Ævintýraferð í Botna 16. - 17. ágúst

Barna- og fjölskylduferð. Ævintýraferð í Botna 16. - 17. ágúst

Ævintýraferð í Botna

16. - 17. ágúst, laugardagur og sunnudagur

Brottför kl. 9 á einkabílum frá FFA, Strandgötu 23.
Safnast saman í bíla ef vill.
Fararstjórn: Fjóla Kristín Helgadóttir, Sunna og Ragnheiður Ragnarsdætur

Ekið í Svartárkot í Bárðardal. Þaðan er gengið eftir bílslóða í Suðurárbotna í skálann Botna þar sem verður gist eina nótt. Daginn eftir er gengið til baka sömu leið í Svartárkot. Í Suðurárbotnum er ævintýralegt umhverfi með mörgum litlum tjörnum. Þó leiðin sé nokkuð löng er hún auðveld yfirferðar. Hér eru upplýsingar um skálann.

Vegalengd: 15 - 16 km hvor leið. Gönguhækkun lítil

Verð: 4.500 / 6.500 fyrir fullorðna, frítt fyrir börn. Innifalið: Gisting í eina nótt fyrir einn fullorðinn og börn og fararstjórn.

Hvenær
16. - 17. ágúst
Klukkan
09:00-17:00
Hvar
Strandgata, Akureyri
Verð
4.500 / 6.500 fyrir fullorðna, frítt fyrir börn.